Inngangur |
Taacoca er tveggja manna abstract borðspil sem spilað er á sexhyrndu borði og var fundið upp af Víkingi Fjalari Eiríkssyni 2009. |
Borðið |
Taacoca er spilað á sexhyrndu borði með 5 reitum á hverri hlið. Neðsta röðin er "heima röð" hvíta spilarans. Efsta röðin er "heima röð" svarta spilarans" Í byrjun hefur hver leikmaður 12 steina. Byrjunarstaðan er sýnd á meðfylgjandi mynd: |
Markmið leiksins |
Markmið Taacoca er að komast í Heima röð óvinarins með einum að sínum steinum. Leikmaður vinnur einnig ef mótherjinn á enga steina eftir. Það eru engin jafntefli í Taacoca |
Spilun | ||||
Hvítur byrjar, leikmenn skiptast á að hreyfa 3 steina einn reit áfram (ef leikmaður hefur færri en 3 steina, þá þarf hann að hreyfa alla þá sem eru eftir). Steinarnir sem valdir eru þurfa ekki að vera tengdir, en þurfa þó að vera hreyfðir í sömu átt:
Leikmaður getur ekki fært steinanna sína ef hans eigin steinn er fyrir. Ef einhver að reitunum (eða allir) sem færa skal á inniheldur óvinastein þá eru þeir fangaðir og færðir af borðinu. |